Rauða Nótt song:Alda Dis Þú kveiktir bál í köldum glæðum, logar þínir brennimerktu mig Ég var heltekin af fegurð þinni, veröldin hún hringsnerist um þig Allar stjörnurnar á himninum sögðu mér að trúa'og treysta þér Núna stend ég ein í tóminu með hnífinn þinn í bakinu á mér En ég reyna'að finna hugarró Fram á rauða nótt fram á rauða nótt Reyna'að dansa burtu tárin syngja burtu sárin og þegar allt er hljótt þegar allt er hljótt Reyna'að sofna'og finna frið Gleyma þér í augnablik Ég horfi upp í himininn hann segir alla söguna um þig og ég lygni aftur augunum og leyfi huganum að staldra við En það blæðir enn úr hjartanu hvernig sem ég reyni'að snúa því Er ég vakna upp í tóminu og finn það hversu sárt ég sakna þín og ég reyni'að finna hugarró Fram á rauða nótt fram á rauða nótt Reyna'að dansa burtu tárin syngja burtu sárin og þegar allt er hljótt þegar allt er hljótt Reyna'að sofna'og finna frið Gleyma þér í augnablik Fram á rauða nótt Reyna'að dansa burtu tárin syngja burtu sárin Þú kveiktir bál í köldum glæðum, logar þínir brennimerktu mig Ég var heltekin af fegurð þinni, veröldin hún hringsnerist um þig Fram á rauða nótt fram á rauða nótt Reyna'að dansa burtu tárin syngja burtu sárin og þegar allt er hljótt þegar allt er hljótt Reyna'að sofna'og finna frið Gleyma þér í augnablik Reyna'að sofna'og finna frið Gleyma þér í augnablik