Augað mitt og augað þitt, og þá fögru steina mitt er þitt og þitt er mitt, þú veizt, hvað eg meina. Langt er síðan sá eg hann, sannlega fríður var hann, allt, sem prýða mátti einn mann, mest af lýðum bar hann. Þig eg trega manna mest mædd af tára flóði, ó, að við hefðum aldrei sést, elsku vinurinn góði. Langt er síðan sá eg hann, sannlega fríður var hann, allt, sem prýða mátti einn mann, mest af lýðum bar hann. Þig eg trega manna mest mædd af tára flóði, ó, að við hefðum aldrei sést, elsku vinurinn góði.